Gospel um helgina

Kirkjukór Hólaneskirkju heldur gospeltónleika undir stjórn Óskars Einarssonar , ásamt hljómsveit, sem verða haldnir á þremur stöðum á Norðurlandi vestra  helgina 22. til 24. október n.k.

Kirkjukór Hólaneskirkju hefur um árabil notið leiðsagnar hins margrómaða gospelkóngs Íslands, Óskars Einarssonar, við flutning gospeltónlistar. Upphaf samstarfs kórsins og Óskars má rekja aftur til ársins 1999 en þá kom Óskar til Skagastrandar og hélt sitt allra fyrsta „gospelnámskeið“. Segja má að námskeiðið hafi slegið algerlega í gegn því síðan þá hefur Óskar farið vítt og breitt um Ísland og haldið merkjum gospeltónlistarinnar á lofti með því að miðla þekkingu sinni til kóra og sönghópa.

 

Kórfélagar hafa nú ákveðið að fá Óskar Einarsson ásamt hljómsveit og gestasöngvurum í lið með sér til þess að halda gospeltónleika á Skagaströnd, í Skagafirði og á Hvammstanga. Æfð hafa verið 15-17 lög sem flutt verða undir stjórn Óskars fyrir Húnvetninga og Skagfirðinga. Verkefnið er hugsað sem eins konar uppskeruhátíð eftir námskeiðahald undanfarinna ára.

 

Tónleikarnir verða haldnir á þessum stöðum um næstu helgi:

Hólaneskirkju Skagaströnd, laugardaginn 23. október kl: 17:00

Miðgarði Skagafirði sunnudaginn  24. október kl: 15:00

Hvammstangakirkju sunnudaginn 24. október kl: 20:00

Stjórnandi er Óskar Einarsson

Söngvarar: Kirkjukór Hólaneskirkju ásamt gestum

Hljómsveit: Brynjólfur Snorrason og Jóhann Ásmundsson

Kynnir: Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson fyrrverandi sóknarprestur á Skagaströnd

 

 

Verkefnið hefur hlotið styrki frá Menningarráði Norðurlands vestra og Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir