Gott gengi hjá USAH
Frjálsíþróttahópur USAH, Ungmennasambands Austur Húnvetninga, sigraði Bikarkeppni FRÍ 2. deild, um síðustu helgi.
Samkvæmt vefsíðunni Huni.is hefur hópurinn, sem er mjög ungur, ekki tekið þátt í bikarkeppninni í mörg ár.
Hópurinn hafði einnig haft yfirburðasigur á Þristinum sem fór fram í Reykjaskóla þann 11. ágúst síðastliðinn. Þar kepptu Lið USAH, USVH og UMSS í frjálsum íþróttum 14 ára og yngri. USAH sigraði með 236 stigum, lið UMSS varð í öðru sæti með 192 stig og USVH í því þriðja með 92 stig.