Grænt kort af Íslandi
Náttúran.is hefur gefið út Grænt kort / Green Map IS í prentútgáfu en kortið er afrakstur áralangrar vinnu við rannsóknir og gagnasöfnun um stofnanir, félög, verkefni, þjónustu- og framleiðslufyrirtæki sem og náttúrfyrirbæri sem falla undir flokkunarkerfi Green Map®System.
Green Map®System er alþjóðlegt kerfi sem byggir á myndtáknum og viðmiðum sem gilda á heimsvísu en græn kort hafa verið þróuð í yfir 60 löndum. Á íslenska kortinu eru um 1200 aðilar og fyrirbæri í 77 flokkum, önnur hlið sýnir allt Ísland en hin Reykjavík og nágrenni. Kortið er bæði á íslensku og ensku.
Í dag koma helmingi fleiri ferðamenn til landsins en íbúar landsins telja. Búist er við að sú tala muni tvöfaldist á næstu misserum. Eitt mikilvægasta verkefni dagsins í dag hlýtur því að vera að undirbúa komu erlendra ferðamanna með það í huga að beina þeim inn á grænni brautir í heimsókn sinni og tryggja öryggi þeirra.
Ágangur ferðamanna á viðkvæm svæði er nú þegar stórt vandamál sem að allir verða að taka á áður en að það verður óyfirstíganlegt. Markmið okkar er að gera bæði erlenda ferðamenn og okkur íslendinga meðvitaðri um; viðkæmi ósnortins lands, umgengni og val á áfangastöðum og val á þjónustufyrirtækjum og vöruframboði í takt við náttúruna.
Náttúran.is er íslenskt hönnunar- og tækniþróunarfyrirtæki sem hvetur á marga vegu til sjálfbærrar þróunar. Fyrirtækið rekur óháðan miðil Náttúran.is sem rannsakar, vinnur úr og veitir upplýsingar um málefni sem snerta umhverfi, náttúru, náttúruvernd, heilsu og neyslu.
Á Náttúran.is má finna nýja vefútgáfu af Græna kortinu með 155 flokkum en Græna kortið í app-útgáfu fer í dreifingu á næstunni. http://natturan.is/greenmap/island/