Greiðfært á Norðurlandi vestra

Vakin er athygli á að þessi mynd er tekin af vef Vegagerðarinnar um kl. 8 í morgun. Því er lesendum bent á að fara á vefinn til að fá nýjustu upplýsingar.
Vakin er athygli á að þessi mynd er tekin af vef Vegagerðarinnar um kl. 8 í morgun. Því er lesendum bent á að fara á vefinn til að fá nýjustu upplýsingar.

Allir vegir á Norðurlandi vestra eru nú greiðfærir, samkvæmt upplýsingasíðu Vegagerðarinnar en hálkublettir eru á Öxnadalsheiði. Þá er blíðuveður og vindur víðast hvar um 2-5 metrar á sekúndu.

Veðurstofna spáir vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þykknar upp, 8-13 m/s og rigning með köflum á morgun. Hlýnandi veður, hiti 5 til 10 stig síðdegis.

Fleiri fréttir