Greiðir dvalargjald í listamiðstöð í Þýskalandi
Nes listamiðstöð á Skagaströnd ætlar að greiða dvalargjald fyrir íslenskan listamann í þýsku listamiðstöðinni, Künstlerhaus Lukas, í Þýskalandi og auglýsir nú eftir umsóknum. Nes listamiðstöð mun greiða fyrir einn mánuð á þessu ári og mögulegir dvalarmánuðir eru júní, júlí, október og nóvember 2012.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 1. apríl nk. á netfangið application@neslist.is. Umsækjendur þurfa að láta fylgja með ferilskrá (CV) á ensku, ásamt verkefnislýsingu á ensku og myndir af tveimur listaverkum sem umsækjandi telur vera einkennandi fyrir sín verk. Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurnir á nes@neslist.is.
Hér má skoða heimasíðu Künstlerhaus Lukas.