Greiðslur vegna refaveiða í Húnavatnshreppi
Á fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps 2. febrúar sl. var rætt um fyrirkomulag refaveiða og var samþykkt að greiða eftirfarandi vegna refaveiði í hreppnum árið 2011.
Fyrir hlaupadýr verða greiddar 8.000 kr. fyrir hvert dýr. Greiðslur vegna hlaupadýra fá einungis þeir veiðimenn sem gert hafa skriflegan samning við sveitarfélagið vegna vetrarveiði á ref.
Varðandi samninga um grenjavinnslu þá verður tímafjöldi skertur um 20% frá fyrri samningum.
Greiddar verða 8.000 kr fyrir fullorðin dýr og 2.500 kr. fyrir yrðlinga.