Greiðsluseðlar ekki sendir út

Á heimasíðu Blönduósbæjar eru bæjarbúar beðnir að athuga að greiðsluseðill vegna fyrsta gjalddaga fylgdi álagningaseðli fasteignagjalda en framvegis verða ekki sendir út greiðsluseðlar til gjaldenda.

Heldur muni þeir birtast á heimabanka hjá viðkomandi. Engin breyting verður hjá þeim sem áður hafa óskað eftir boðgreiðslum eða eru í greiðsluþjónustu hjá bönkum.

Hægt er að óska eftir að fá senda greiðsluseðla vegna fasteignagjalda á skrifstofu

Blönduósbæjar sem veitir allar frekari upplýsingar í síma 455 4700.

Fleiri fréttir