Grunnmenntaskóli í vetur
Farskólinn-Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra ætlar í vetur að bjóða upp á Grunnmenntaskólann sem er 300 kennslustunda nám, ætlað þeim sem eru orðnir 20 ára. Þeir sem ljúka náminu geta haldið áfram námi við framhaldsskóla og hentar því þeim sem eru með stutta skólagöngu að baki en vilja byrja aftur í skóla.
Kennt verður tvisvar í viku frá klukkan 18-22 og lýkur náminu í maí 2017. Engin próf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Mætingaskylda er 80% í hverjum námsáfanga. Fjarkennt verður í námsver utan Sauðárkróks.
Námsráðgjafi Farskólans, Sandra Hilmarsdóttir, veitir allar nánari upplýsingar um námið í síma 455 6160 en einnig er upplýsingar að finna á heimasíðu Farskólans og Facebook. Skráningum lýkur 2. september.