Grunnskólamótið á Blönduósi
Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verður haldið í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi sunnudaginn 20. febrúar kl: 13:00. Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti miðvikudaginn 16. feb 2011 á netfangi: neisti.net@simnet.is
Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests, aldur, litur og keppnisgrein.
Keppnisgreinar eru:
1. - 3. bekkur þrautabraut
4 - 10. bekkur smali
8. - 10. bekkur skeið
Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr fyrir næstu skráningar og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.