Grunnskólamótið hefst um næstu helgi
Nú styttist í grunnskólamótið, þar sem keppt er í hinum ýmsu greinum hestamennsku. Mótið nær yfir allt Norðurland vestra og fara keppnir fram á Blönduósi, Hvammstanga og Sauðárkróki. Keppnisdagar eru eftirfarandi:
9. mars á Blönduós - þrautabraut, smali og skeið
15. apríl á Hvammstanga - fegurðarreið, tölt og skeið
27. apríl á Sauðárkróki - fegurðarreið, tvígangur, þrígangur, fjórgangur og skeið
Þrautabraut, smali og skeið verða í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 9. mars og hefst keppnin kl. 13.00.
Keppnisgreinar eru:
1. - 3. bekkur þrautabraut
4. - 7. bekkur smali
8. - 10. bekkur smali
8. - 10. bekkur skeið
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti miðvikudaginn 05. mars á netfangið: sonjasu@ismennt.is
Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein.
Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr. fyrir næstu skráningar og skal greiða á staðnum áður en mót hefst (ekki tekið við greiðslukortum).
Nánari upplýsingar og keppnisreglur er m.a. að finna á heimasíðu Neista.