Gul veðurviðvörun á fyrsta degi júnímánaðar
Það hefur varla verið neitt tilefni til að stunda þjóðaríþróttina að kvarta undan veðrinu síðustu vikurnar. Það er jafnvel hætt við því að fólk sé alveg komið úr æfingu en þeir sem hafa saknað þessarar iðju þurfa ekki að örvænta því í næstu viku er allt útlit fyrir að fólk geti rifjað upp gamla takta. Annað kvöld snýst í norðanátt og þegar líður á mánudaginn kólnar verulega, hiti nálgast frostmark og gera má ráð fyrir slyddu eða jafnvel snjókomu.
Einhverjir höfðu á orði þegar líða tók á yndælan maímánuð að í staðinn fengjum við kuldatíð og úrkomusaman júnímánuð en að herlegheitin byrji strax á fyrsta degi júnímánaðar var kannski óþarflega vel í látið.
Í veðurspá Veðurstofunnar sem nær fram á fimmtudaginn 5. júni er ekki margar sólarglennur að sjá og hitinn yfirleitt rokkandi í kringum fjórar gráðurnar. Á forsíðu Feykis.is er Birta með veðurupplýsingar og þar nær spáin alveg fram til 10. júní og ekki er að sjá að reiknað sé með að hitinn á Króknum muni ylja fólki að ráði á þeim tíma. Þó kannski skríður hitinn yfir tíu gráðurnar eitt síðdegi eða svo.
Það getur orðið ansi hvasst í norðanáttinni á mánudag og fram á fimmtudag og nokkuð úrkomusamt og úrkoman fallið til jarðar í ýmsum myndum. Það getur því verið vissara að fylgjast með aðstæðum á vegum og þá sérstaklega á fjallvegum en mögulega getur snjóað nokkuð inn til sveita.
Gul veðurviðvörun tekur gildi á hádegi á mánudaginn og nær um allt land allan þriðjudag en lengra nær spákortið ekki varðandi viðvaranir. Í það minnsta er gert ráð fyrir að heldur lægi á miðvikudagsmorgunn og úrkoman verði að mestu í formi rigningar.