Gunnar Bragi sækist eftir því að leiða lista framsóknarmanna
Gunnar Bragi Sveinsson hefur sent formanni kjördæmissambands framsóknarmanna í norðvestur kjördæmi tilkynningu þess efnis að hann sækist eftir fyrsta sæti á lista framsóknarmanna í kjördæminu í komandi kosningum.
„Verkefni næstu fjögurra ára er að snúa við þeirri ringulreið og ósamstöðu sem því miður hefur einkennt stjórn landsins undanfarin fjögur ár, og sem komið hefur í veg fyrir að hin fjölmörgu tækifæri landsins hafa ekki verið nýtt sem skyldi,“ segir Gunnar Bragi en mikilvægasta verkefnið að mati Gunnars Braga er að skapa traust og samstöðu meðal þjóðarinnar og nýta styrk fólksins og landsins til að skapa samfélag velmegunar og lífshamingju fyrir alla.