Gunnar Bragi Sveinsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis
Þá er það ljóst eftir langa og stranga kosningavöku hverjir hlutu kosningu til setu á komandi Alþingi. Beðið var eftir lokatölum út Norðvesturkjördæmi til klukkan hálf níu í morgun en það voru jafnframt síðustu tölur kosninganna sem lesnar voru upp. Framsóknarflokkurinn fékk flest atkvæði og fjögur þingsæti í Norðvesturkjördæmi, Sjálfstæðismenn tvö og Samfylking og Vinstri-græn eitt þingsæti hvort um sig.
Á Rúv segir að 17.833 atkvæði hafi verið greidd og skiptust þau með eftirfarandi hætti.
- Björt framtíð 4,4%
- Framsóknarflokkur 34,2%
- Sjálfstæðisflokkur 24,0%
- Hægri grænir 1,2%
- Flokkur heimilanna 0,9%
- Regnboginn 4,3%
- Lýðræðisvaktin 1,4%
- Landsbyggðarflokkurinn 1,8%
- Samfylkingin 11,9%
- Dögun 1,8%
- Vinstri-græn 8,2%
- Píratar 3,0%
Þingmenn Norðvesturkjördæmis eru sem hér segir:
- 1) Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki,
- 2) Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki,
- 3) Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokki,
- 4) Haraldur Benediktsson, Sjálfstæðisflokki,
- 5) Guðbjartur Hannesson, Samfylkingu,
- 6) Elsa Lára Arnardóttir, Framsóknarflokki,
- 7) Jóhanna María Sigmundsdóttir, Framsóknarflokki
- 8) Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri-grænum.