Gunnar Tryggvi framkvæmdastjóri SAH
Gunnar Tryggvi Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SAH Afurða og SAH svf. á Blönduósi. Formlega var gengið frá ráðningu Gunnars á föstudaginn og mun hann hefja störf í byrjun júlí, eins og greint er frá á vefun Húni.is. Gunnar, sem er sagnfræðingur að mennt, var áður framkvæmdastjóri útibús Íslandspósts á Blönduósi.
Á aðalfundi SAH Afurða sem haldinn var í lok apríl síðastliðinn tilkynnti Sigurður Jóhannesson, þáverandi framkvæmdastjóri félagsins, að hann hefði sagt upp störfum frá og með 1. maí síðastliðnum. Síðan hefur hann gegnt þeim störfum sem stjórn félagsins hefur falið honum.