Hæg breytileg átt og él í dag

Veðrið kl. 12 á hádegi í dag, 28. janúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd: Vedur.is
Veðrið kl. 12 á hádegi í dag, 28. janúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd: Vedur.is

Fremur hæg breytileg átt og él er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en norðaustan 8-13 á Ströndum seint í kvöld. Norðaustan 10-18 og él á morgun, en hægari inn til landsins, einkum austantil. Frost 1 til 8 stig. Hálka og hálkublettir er á vegum.  

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Norðaustan og austan 10-18 m/s og snjókoma eða él. Hægari vindur og úrkomulítið á NA-verðu landinu, en vaxandi norðanátt með éljum þar undir kvöld. Hiti frá frostmarki við SA-ströndina, niður í 10 stiga frost í innsveitum NA-lands. 

Á laugardag:

Norðan 8-13 m/s og él, en bjart sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig. Dregur úr vindi og úrkomu síðdegis og herðir á frosti. 

Á sunnudag:

Vaxandi austan- og norðaustanátt, 10-18 m/s um kvöldið. Él með N-ströndinni og syðst, annars yfirleitt úrkomulaust á landinu. Áfram kalt í veðri.  

Á mánudag:

Allhvöss eða hvöss norðanátt og snjókoma eða él, en þurrt að kalla um landið S-vert. Frost 1 til 6 stig. 

Á þriðjudag:

Norðan 5-13 m/s með éljum N-til, en bjart syðra. Frost 3 til 9 stig. 

Á miðvikudag:

Norðvestan 8-13 m/s og él á NA-verðu landinu. Hægari vindur og víða bjart S- og V-til. Frost um allt land, sums staðar talsvert.

Fleiri fréttir