Hæg norðlæg átt og slydduél

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg norðlæg átt, skýjað og slydduél. Norðan 3-8 um hádegi og stöku él, en norðaustlægari í kvöld og hvessir. Vegir á landinu eru víðast hvar greiðfærir.  Þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði. Krap eða hálkublettir á köflum á Norðurlandi, einkum á fjallvegum.

Austan og norðaustan 10-18 með slyddu og síðar rigningu í fyrramálið, en hægari suðaustanátt og úrkomuminna undir kvöld. Kólnar, hiti kringum frostmark síðdegis, en hlýnar aftur á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Suðaustan 13-20 m/s og rigning, einkum um landið sunnanvert. Snýst í suðvestan 8-13 með skúrum síðdegis, fyrst suðvestantil. Hiti víða 2 til 7 stig.

Á laugardag:

Norðan og norðvestan 10-18 m/s, snjókoma og síðan él um landið norðanvert og frystir, en heldur hægari sunnantil, úrkomulítið og hiti 2 til 6 stig. Hægari um kvöldið.

Á sunnudag:

Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 og víða skúrir eða él, einkum um landið sunnanvert. Vægt frost norðantil, en hiti 2 til 5 stig með suðurströndinni.

Á mánudag:

Hæg suðvestlæg átt og bjartviðri, einkum austantil, en gengur í sunnan 13-20 síðdegis, fyrst suðvestanlands með rigningu og hlýnandi veðri.

Á þriðjudag:

Lítur út fyrir allhvassa suðvestanátt með skúrum, en norðaustanátt NV-til með éljum. Hiti víða 1 til 4 stig.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir fremur kalda norðanátt með éljum fyrir norðan, en úrkomulítið syðra.

Fleiri fréttir