Hæg suðlæg átt og bjartviðri í dag
Í dag verður hæg suðlæg átt og bjartviðri á Norðurlandi vestra, en 5-10 í nótt og dálítil slydda í fyrstu og síðar rigning. Suðvestan 5-10 á morgun og skúrir. Hægt hlýnandi, hiti 2 til 8 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Sunnan 5-10 m/s. Víða rigning og sums staðar slydda í innsveitum á NA-verðu landinu. Suðvestlægari síðdegis og skúrir en styttir upp NA- og A-lands. Hiti 2 til 8 stig.
Á föstudag:
Suðlæg átt 3-10 m/s og skúrir eða slydduél, en bjartviðri NA-til á landinu. Hiti 0 til 6 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Austan og norðaustanátt, víða 5-10 m/s, en heldur hvassari á Vestfjörðum. Skúrir eða slydduél S-lands og hiti 1 til 6 stig, en slydduél eða él á N-verðu landinu og hiti um frostmark.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit austlæga átt og úrkomusamt veður. Hlýnar lítillega.