Hæg suðvestlæg eða breytileg átt í dag

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt og úrkomulítið, en skýjað með köflum á morgun. Hiti 0 til 4 stig að deginum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Austlæg átt 3-8 og skýjað með köflum eða bjartviðri, en 8-13 og smáskúrir syðst. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en víða frost fyrir norðan, einkum inn til landsins.

Á fimmtudag:

Norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri suðvestan- og vestanlands. Hiti að 5 stigum, mildast við ströndina.

Á föstudag:

Austlæg átt. Dálítil rigning eða slydda SA-lands, en annars þurrt. Heldur hlýrra.

Á laugardag:

Stíf austan- og norðaustanátt með rigningu og talverðri úrkomu austantil. Hiti 4 til 10 stig.

Á sunnudag:

Útlit fyrir austlæga átt. Rigning með köflum, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Milt í veðri.

Fleiri fréttir