Hæg vestlæg átt seinnipartinn
Suðvestan 5-10 og skúrir er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en hægari og vestlægari seinnipartinn. Hæg sunnanátt og léttir til í nótt. Suðaustan 8-13 og rigning með köflum á morgun. Hiti 5 til 10 stig, en heldur hlýnandi á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðaustan 8-15 m/s, hvassast SV- og V-lands. Víða rigning, en þurrt á NA- og A-landi fram yfir hádegi. Suðvestlægari og skúrir S- og V-lands seinnipart dagsins. Hiti 7 til 12 stig.
Á fimmtudag:
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir, en hægari og úrkomulítið A-lands. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast austast.
Á föstudag:
Norðan 5-13 m/s og dálítil rigning N-til, en vestlægari og skúrir syðra. Hiti 5 til 11 stig, mildast við S-ströndina.
Á laugardag:
Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið NA-til. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast NA-lands.
Á sunnudag:
Suðvestanátt og skúrir, en bjart fyrir austan. Heldur kólnandi.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með vætu og hlýnandi veðri.