Hægt að fylgjast með Stjórnlagaþingi á Netinu

Verkefnanefndir Stjórnlagaráðs hófu störf í gær en þær hafa alls 14 þætti til umfjöllunar sem er í samræmi við þingsályktunartillögu um Stjórnlagaráð auk tillagna í skýrslu stjórnlaganefndar. Hægt er að fylgjast með Stjórnlagaráði á helstu samfélagsmiðlum, Facebook, Youtube og Flickr.com.

Reglulega eru fluttar fréttir af störfum ráðsins á vefsíðunni  www.stjornlagarad.is en þar er hægt að gerast áskrifandi af fréttabréfi þess en einnig  er möguleiki að fylgjast með beinum útsendingum af ráðsfundum sem eru á fimmtudögum kl. 13 á vefsíðunni og á Facebook.  Þar eru jafnframt dagskrár funda, fundargerðir og samþykktir ráðsins.

Íris Lind Sæmundsdóttir fulltrúi í Stjórnlagaráði er í stuttu spjalli á Youtube og segir frá störfum C-nefndar ráðsins en hlutverk hennar er m.a. að fjalla um sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds, alþingiskosningar, kjördæmaskipan og alþingismenn, samninga við önnur ríki og utanríkismál.

Fleiri fréttir