Hægviðri og þýða í kortunum

Útlit er fyrir ágætis veður og færð næstu daga, enda þýða í kortunum og víða orðið greiðfært nú þegar. Á Norðurlandi vestra er greiðfært frá Hrútafirði til Skagastrandar en á öðrum leiðum eru hálkublettir. Hægur vindur, víðast á bilinu 2-7 m/s.

Veðurspáin á Ströndum og Norðurlandi vestra fyrir helgina hljóðar upp á austan 10-15 á annesjum og dálítil rigning af og til, en annars hægari og þurrt að kalla. Hiti 0 til 4 stig.

Fleiri fréttir