Hæsta hlutfall íbúa í strjálbýli er á Norðurlandi vestra
Ísland er dreifbýlt land og hefur Byggðastofnun tekið saman forvitnilegar tölur í því sambandi og studdist við tölur og skilgreiningar Hagstofunnar fyrir 2012. Alls búa 16.516 manns í strjálbýli eða 5,2% og 94,8% í 101 þéttbýlisstað á landinu eða 303.059 manns. Af þessum þéttbýlisstöðum er Laugarbakki í Húnaþingi vestra með fæsta íbúa, 45 manns, en Reykjavík með flesta, 117.980.
Flestir þéttbýlisstaðir eru á Norðurlandi eystra, 20 talsins, en 19 á Suðurlandi. Á Suðurlandi búa samt hlutfallslega næstflestir íbúar í strjálbýli, 20,7%, en hæst hlutfall íbúa í strjálbýli er á Norðurlandi vestra eða 33,4%. Á vef Byggðastofnunar segir að vert sé þó að geta þess að í þessum tölum reiknist Höfn í Hornafirði með Austurlandi.
Fæstir þéttbýlisstaðir eru á Suðurnesjum, 6 talsins, en þar búa samt 99,4% íbúanna í þéttbýli.
Á kortinu eru þéttbýlisstaðir samkvæmt skilgreiningu Hagstofunnar sýndir í fjórum flokkum eftir íbúafjölda. Þar sést glögglega hversu þéttbyggt er á suðvesturhluta Íslands í samanburði við önnur svæði. Athyglisvert er líka hversu langt er á milli „stórra“ þéttbýlisstaða (með yfir 1.000 íbúa) á Suðurlandi og hversu margir fámennir þéttbýlisstaðir (með færri en 500 íbúa) eru á vesturhluta Suðurlands. Þéttbýlisstaðir af þeirri stærð eru líka margir í Eyjafirði.