Hætt við að ráða fjármálastjóra

Bæjarráð Blönduósbæjar hafnaði öllum umsóknum sem bárust um starf fjármálastjóra en um var að ræða alls tíu umsóknir. Bæjarráð hefur að endurskoðuðu máli ákveðið að ekki sé þörf fyrir fjármálastjóra að svo komnu máli.

Blönduósbær óskaði eftir að ráða fjármálastjóra á skrifstofu Blönduósbæjar í febrúar en umsóknarfresturinn var til 18. febrúar sl. Fjármálastjóri átti m.a. að hafa yfirumsjón og ábyrgð á fjárreiðum og daglegri fjármálastjórn bæjarins. Óskað var eftir að viðkomandi væri með háskólapróf á sviði fjármála og rekstrar eða önnur menntun á háskólastigi sem nýttist í starfi var æskileg.

Málið var tekið til umfjöllunar á fundi bæjarráðs sl. mánudag og þá var bæjarstjóra þess í stað falið að auglýsa eftir aðalbókara fyrir sveitarfélagið.

Fleiri fréttir