Hætta á flughálku með hlýnandi veðri

Færð á vegum Norðanlands mánudaginn 14. desember kl. 9:17. Mynd/Vegagerðin.is
Færð á vegum Norðanlands mánudaginn 14. desember kl. 9:17. Mynd/Vegagerðin.is

Nú er eða hlýna á landinu úr vestri með snjókomu, slyddu og síðar rigningu. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er hætt við að flughált verði við þessi umskipti að loknum frostakafla, þegar blotnar á klaka og þjappaðan snjó sem fyrir er. Hálka er á flestum vegum á Norðurlandi en sumstaðar snjóþekja, einkum á útvegum. 

Vaxandi sunnan átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, 8-15 m/s og dálítil slydda eða rigning upp úr hádegi, hvassast á annesjum. Hiti 0 til 5 stig síðdegis. Sunnan 8-13 í fyrramálið og stöku él, en hægari og þurrt að mestu seint á morgun og kólnar.

Á þriðjudag:
Sunnan 3-10 m/s og lítilsháttar slydda eða rigning á S- og V-landi, hiti 0 til 4 stig. Annars staðar bjart að mestu og frost 0 til 5 stig. 

Á miðvikudag:
Fremur hæg austlæg átt, skýjað og dálítil væta S- og V-til, en að mestu bjart N-lands. Frostlaust með S- og V-ströndinni, annars frost 0 til 7 stig. 

Á fimmtudag:
Stíf norðaustlæg átt og snjókoma eða slydda N- og A-lands, en rigning eða slydda sunnan heiða. Frost 0 til 4 stig, en rétt yfir frostmarki syðst. 

Á föstudag:
Austlæg átt 5-13 m/s og rigning eða slydda S- og V-lands, en stöku él A-ast. Úrkomulaust annars staðar. Vægt frost víða, en frostlaust S- og SV-til. 

Á laugardag:
Stíf austlæg átt. Rigning um landið S-vert og hiti 1 til 6 stig, en slydda eða rigning fyrir norðan og hiti um frostmark. 

Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt og snjókomu eða slyddu NV-til, annars breytileg átt og rigning með köflum. Hiti breytist lítið.

 

Fleiri fréttir