Hætta vegna snjósöfnunar undir háspennulínum

Mikill snjór er nú á Þverárfjalli á Skaga og hefur m.a. hlaðist upp undir háspennulínu RARIK á svæðinu frá bænum Þverá til Hvammshlíðar. Aðstæður á þessu svæði er nú orðinn þannig að vírinn,, þar sem hann er lægstur, er kominn niður fyrir tvo metra. Á heimasíðu RARIK kemur fram að reynt verði að ryðja snjó undan línunni ef aðstæður leyfa og verður það líklega gert nk. mánudag.

Um fleiri kafla á línunni getur verið að ræða og fólk sem á leið um þetta svæði vinsamlegast beðið um að sýna varkárni. Þá er fólki bent á síma svæðisvaktar RARIK á Norðurlandi, 528 9690 til að fá nánari upplýsingar.

Rétt er að taka fram að línan liggur ekki yfir þjóðveginn svo vegfarendur eftir Þverárfjallsvegi eru ekki í hættu.

Fleiri fréttir