Hafa áhyggjur af innlagnabanni á HVE á Hvammstanga

Mynd: Hve.is
Mynd: Hve.is

Sveitarstjórn Húnaþings vestra tók fyrir ásíðasta fundi sínum  innlagnabann á sjúkrahúsinu á Hvammstanga og deildi áhyggjum sínum með öldungaráði Húnaþings vestra. Fram kemur að fulltrúar byggðarráðs hafi verið í samskiptum við fulltrúa Heilbrigðisstofnunar Vesturlands vegna málsins.

Að sögn Aldísar Olgu Jóhannesdóttur, svæðisfulltrúa HVE á Hvammstanga, snýst málið um tímabundnar aðgerðir sem þótti nauðsynlegt að ráðast í vegna rekstrarumhverfis. Þegar Feykir hafði samband við Aldísi fyrir helgi sagði hún að vonir standi til að þeim fari að létta fljótlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir