Hafíssetrið opnar á sunnudaginn

Sunnudaginn 29. maí kl. 14:00 opnar Hafíssetrið í Hillebrandtshúsi á Blönduósi að nýju eftir vetrarfrí. Á sýninguna hefur bæst við heimildarmyndin “Þegar hafísinn kom” sem gerð var af Catherine Chambers doktorsnema við Háskólann í Alaska og Katharina Schneider forstöðumanni Hafíssetursins sl. sumar. Í myndinni segja heimamenn frá minningum sínum um hafís og hafískomu.

Boðið verður upp á kaffi, kakó og kleinur fyrir gesti og eru allir velkomnir!

Hafíssetrið verður opið alla daga frá kl. 11 - 17 í sumar.

Fleiri fréttir