Hafnarbakkinn kominn í spilun á Rás 2

Í vikunni fór nýtt lag með Contalgen Funeral, Hafnarbakkinn í spilun á Rás 2. Lagið er fjórða lagið með Contalgen Funeral sem sem fer í spilun á Rás 2 en hin voru Pretty Red Dress, Charlie og Not Dead Yet.

Lögin eru öll af plötunni Pretty Red Dress sem kom út sumarið 2012. Hæst náði lagið Not Dead Yet 15. sæti á Vinsældarlista Rásar 2. Hér er hægt að velja nýja lagið, Hafnarbakkann og freista því að koma því inná listann.

Bandið er bókað á Síldarævintýri á Siglufirði um Verslunarmannahelgina og á Gærunni 16.-17. ágúst næstkomandi.
Hér má heyra nýja lagið

 

Fleiri fréttir