Hagnaður SAH Afurða ehf 27.7 m.kr

Aðalfundur SAH Afurða ehf. og Sölufélags Austur Húnvetninga svf. fór fram í húsum félagsins í gær, þann 6. apríl. Fundarstörf voru samkvæmt samþykktum félaganna. Fram kom að velta SAH Afurða var um 1.570 m.kr. á liðnu ári. Hagnaður fyrir fjármagnsliði nam tæpum 64 m.kr. Eftir fjármagnsliði var hagnaður félagsins 27.7 m.kr. sem er umtalsverður rekstrarbati frá fyrra ári.

Baldvin Sveinsson lét af störfum sem formaður stjórnar SAH svf. og var Björn Magnússon frá Hólabaki, kosinn formaður í hans stað. Gegnir hann jafnframt stjórnarformennsku í SAH Afurðum.

Baldvini voru þökkuð góð störf í þágu félagsins og Björn boðinn velkominn til starfa.

Ekki urðu aðrar breytingar á stjórnum félaganna.

/sahun.is

Fleiri fréttir