Hagnaður um 66,3 milljónir kr.
Í ársreikningi sveitarfélagsins Skagastrandar kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar voru 537 m.kr. en voru 497,4 m.kr. árið 2012 og hafa hækkað um 8% milli ára. Rekstrarniðurstaða var jákvæð á árinu um 66,3 m.kr. í samanburði við 134,7 m.kr. neikvæða afkomu árið 2012.
Í síðari umræðu um ársreikninginn á fundi hjá sveitarstjórninni sl. mánudag kom fram að rekstrarafkoma ársins 2012 markaðist af því að undir rekstur þess árs var fært 180 m.kr. óafturkræft framlag til hitaveituframkvæmda en án þess framlags hefði rekstur ársins verið jákvæður um 45,3 milljónir. Rekstrargjöld samstæðu námu 480,8 milljónum en voru 462,5 milljónir 2012 fyrir utan umrætt 180 milljóna hitaveituframlag. Rekstrarafkoma hefur batnað milli ára um 26,4 milljónir að teknu tilliti til kostnaðar vegna hitaveituframkvæmda. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er 35,5 milljónum hagstæðari en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir en áætluð rekstrarafkoma ársins var 30,8 milljónir.
Eigið fé samstæðu í árslok 2013 nam 1.209 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall samstæðu var 72% í lok árs 2013 en var 71,4% árið 2012. Veltufjárhlutfall samstæðunnar nam 8,65 en var 9.08 í árslok 2012. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi var veltufél frá rekstri samstæðunnar 75,3 m.kr. og handbært fé frá rekstri 73,4 m.kr. Handbært fé samstæðunnar nam 520,8 m.kr. í árslok en var 490,1 m.kr. í árslok 2012.
Sveitastjórn samþykkti ársreikning og áritaði að lokinni umræðu.