Hagsmunasamtaka heimilanna brýna nýja ríkisstjórn

Hagsmunasamtaka heimilanna finnst mikilvægt að minna á tvö brýn mál sem þola enga bið og þurfa að klárast á sumarþinginu. Segir í tilkynningu frá þeim að þau hafi ávallt verið tilbúin til að vinna með stjórnvöldum að góðum málum og það stendi hér eftir sem hingað til.

„Eftirfarandi eru mál sem þrýst var á um við síðustu ríkisstjórn, en ekkert varð um efndir á þeim bæ. Nú er það spurningin með nýja ríkisstjórn, hvort vilji sé til að framkvæma það sem raunverulega þarf að gera fyrir heimilin og fjölskyldur landsins.

Mikilvægt er að strax nú á sumarþingi verði sett fram raunveruleg áætlun varðandi leiðréttingar lána og afnám verðtryggingar, þótt framkvæmdin þurfi að bíða fram á haustið. Að öðrum kosti mun ný ríkisstjórn tapa trúverðugleikanum, með hliðsjón af því sem lofað var í nýliðinni kosningarbaráttu.  Þá er hætt við að upplausn myndi skapast í þjóðfélaginu með slæmum afleiðingum sem er síst það sem þörf er á nú,“ segir í tilkynningunni.

Eftirfarandi tvö mál eru mest aðkallandi að mati samtakanna og þarf að afgreiða án tafar, strax á sumarþingi.

Númer 1:    Stöðva þarf allar aðfarargerðir, gjaldþrot, nauðungarsölur og sölur á veðhafafundum á eignum á meðan beðið er endanlegra dóma um lögmæti allra forma lánasamninga þeirra sem þar eru á bak við.

Númer 2:     Setja þarf ný endurupptökulög sem gagnast myndu þeim sem gerðir hafa verið gjaldþrota, eign þeirra seld nauðungarsölu eða á veðhafafundi á grundvelli ólöglegra lána og ólöglegum útreikningum þeirra, þannig að þessir aðilar geti fengið æru sína aftur, heimili sín og fjölskyldu sinnar til baka frá lánastofnunum sem náðu þeim á sitt nafn með ólöglegum hætti.

Fleiri fréttir