Hagstætt tíðarfar í apríl

Tíðarfar í apríl var hagstætt um meginhluta landsins. Þó var frekar svalt við austurströndina. Mjög þurrt var víða um landið sunnanvert. Apríl var kaldari en mars á svæðinu frá norðanverðum Vestfjörðum austur um Norðurland og suður til Hornafjarðar samkvæmt vef Veðurstofu Íslands.

Hiti var undir meðallagi austast á landinu en annars yfir því. Hlýjast var að tiltölu vestanlands og á hálendinu vestanverðu. Þar var hiti 1,3 til 1,8 stigum yfir meðallagi. Meðalhiti í Reykjavík mældist 4,3 stig og er það 1,4 stigum ofan meðallags. Á Akureyri var meðalhitinn 2,2 stig sem er 0,5 stigum ofan meðallags. Á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 3,1 stig og -1,6 á Hveravöllum.

Um austurhluta landsins og víðast norðanlands var apríl talsvert kaldari heldur en mars. Mestu munaði á Dalatanga, 2,7 stigum. Hæsti meðalhiti mánaðarins mældist 5,1 stig á Garðskagavita og í Surtsey. Lægstur var meðalhitinn á Gagnheiði, -5,3 stig. Meðalhiti í byggð var lægstur í Möðrudal, -1,5 stig.

Víðast hvar var í þurrara lagi á Suðvestur- og Vesturlandi. Í Reykjavík mældist úrkoma þó í meðallagi, 59,7 mm. Á Akureyri mældist úrkoma 26,1 mm og er það um 10 prósent undir meðallagi.

Snjólétt var á landinu. Aldrei varð alhvítt í Reykjavík en að meðaltali er þar alhvítt í 3 daga í apríl. Ekki varð heldur alhvítt á Akureyri í apríl en að meðaltali eru þar 11 alhvítir dagar í þeim mánuði.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 153,5 og er það 13 stundum umfram meðallag. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 134,8 eða 5 stundum fleiri en í meðalári.

Fleiri fréttir