Hákon Ingi sigraði stærðfræðikeppnina
Útslitakeppni stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkjar fór fram í gær og var það Hákon Ingi Stefánsson úr Varmahlíðarskóla sem bar þar sigur úr býtum. Alls tóku kepptu 14 nemendur í til úrslita.
Í öðru sæti var Valdimar Daðason úr Dalvíkurskóla og í þriðja sæti var Ásdís Birta Árnadóttir, Höfðaskóla. Allir keppendur fengu veglega vinninga fyrir þátttöku sína og má lesa nánar um það á heimasíðu FNV.
Undankeppni stærðfræðikeppninnar fór fram í 15. mars og samkvæmt heimsíðu FNV tóku 115 nemendur frá Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni.
Af þeim 14 nemendum sem tóku þátt í keppninni í gær voru 2 frá Árskóla, 3 frá Varmahlíðarskóla, 1 frá Höfðaskóla, 3 frá Blönduskóla, 2 frá Grunnskóla Húnaþings vestra, 2 frá Grunnskóla Fjallabyggðar og 1 frá Dalvíkurskóla.