Halastjarna á himni annað kvöld
Halastjarnan, PanStarrs, mun sjást skömmu eftir sólsetur í vesturátt í seinni hluta marsmánaðar en samkvæmt Stjörnufræðivefnum ætti besti tíminn til að sjá halastjörnuna að vera frá morgundeginum, þriðjudaginn 12. mars, til 20. mars en þá verður hún mjög lágt á vesturhimni við sólsetur.
PanStarrs mun sjást skömmu eftir sólsetur út marsmánuð og fram í apríl eða þar til hún er bæði orðin of dauf og sumarbirtan tekur við. Þann 5. mars var PanStarrs næst jörðinni, þá í rúmlega 160 milljón km fjarlægð frá okkur. Fimm dögum síðar, þann 10. mars, komst hún næst sólinni og náði þá hámarksbirtu. Þá sást hún best frá suðlægari slóðum en smám saman fjarlægist halastjarnan sólina og fer hækkandi á himninum. Um leið fer birta hennar dvínandi.
Hvert á að horfa og hvenær?
Til að sjá PanStarrs er mikilvægt að koma sér fyrir þar sem hvorki fjöll, byggingar né gróður trufla útsýnið til sjóndeildarhringsins í vesturátt samkvæmt Stjörnufræðivefnum þar sem halastjarnan er mjög lágt á himninum um þetta leyti og það gæti orðið örlítið krefjandi að finna hana.
Að kvöldi 13. mars gæti útsýnið orðið sérstaklega fallegt. Þá birtist halastjarnan á himninum við sólsetur, skammt frá mjórri vaxandi mánasigð en sjaldgæft er að sjá tunglið og halastjörnu saman á dimmbláum himni.
Sólsetur dagana 12. – 20. mars er:
- 12. mars - kl. 19:20
- 13. mars - kl. 19:23
- 14. mars - kl. 19:26
- 15. mars - kl. 19:29
- 16. mars - kl. 19:32
- 17. mars - kl. 19:35
- 18. mars - kl. 19:38
- 19. mars - kl. 19:41
- 20. mars - kl. 19:44
Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir þriðjudag og miðvikudag, 12. og 13. mars, lítur reyndar ekki vel út því spáð er skýjuðu veðri um allt land en á fimmtudag er spáð NA-áttum og þá gæti eitthvað létt til. Hér er hægt að fylgjast með skýjahuluspánum á Norðljósaspásíðu Veðurstofunnar.
Hér fyrir neðan er umfjöllun um halastjörnuna PanStarrs í nýjasta þætti Sjónaukans á Stjörnufræðivefnum.
http://vimeo.com/60801895