Hálka á flestum leiðum

Norðan 5-10 m/s og él er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en gengur í norðaustan 8-15 í kvöld með éljagangi, hvassast á annesjum. Hægari og dálítil él á morgun. Frost 1 til 6 stig. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi nú rétt fyrir hádegið og éljagangur.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag og mánudag:

Norðaustan 8-13 m/s og él víða um land, en snjómugga syðst. Frost 0 til 8 stig, mest í innsveitum.

Á þriðjudag:

Norðvestan 8-13 m/s og dálítil él NA-lands, en annars norðlægari og bjartviðri. Áfram talsvert frost.

Á miðvikudag:

Hæg breytileg átt, léttskýjað og talsvert frost framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt með snjókoma eða slydda S- og V-lands um kvöldið og hlýnar heldur.

Á fimmtudag:

Allhvöss sunnanátt með talsverðri rigningu, einkum á S-verðu landinu. Hiti 3 til 8 stig. Vestlægari og él V-til um kvöldið og kólnar í veðri.

Fleiri fréttir