Hálka á flestum vegum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
14.12.2013
kl. 13.06
Hálkublettir eru frá Hvammstanga að Blönduósi og áfram á Skagaströnd, hált á Þverárfjalli og þar er éljagangur, sv 7 m/sek og 2°frost. Á öðrum leiðum á Norðurlandi vestra er hálka. Eins og fram kom hér á vefnum í gær valt flutningabíll í Blönduhlíð skammt frá Miklabæ og lokaði veginum í nokkrar klukkustundir, en búið var að opna veginn aftur fyrir kl 15 í gær.
Því er leiðin yfir Öxnadalsheiði opin í dag en þar er hálka líkt og á öðrum fjallvegum.