Hálka á flestum vegum

Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður austlæg átt í dag, 3-8 m/s og léttskýjað, en 8-15, skýjað með köflum og þurrt að kalla síðdegis. Norðaustan 10-18 í nótt og á morgun og dálítil él. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum en 0 til 5 stig í kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Austan og norðaustan 13-20 m/s, hvassast NV-til en austan 18-23 syðst á landinu í fyrstu. Slydda eða rigning S-til en snjókoma á austanverðu landinu annars dálítil él, en léttir heldur til SV-til þegar líður á daginn. Hiti 1 til 5 stig við S-ströndina, en frost annars 0 til 5 stig.

Á föstudag:
Norðaustan 13-20 m/s SA-til fram eftir degi, 10-18 m/s NV-til, en lengst af heldur hægari S- og SV-lands. Snjókoma, slydda eða ringing suðaustanlands, dálítil él fyrir norðan en úrkomulítið SV-til. Minnkandi úrkoma um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við SA-ströndina.

Á laugardag:
Norðaustan 8-15. Él N- og A-lands, bjartviðri að mestu syðra, en líkur á stöku éljum. Heldur kólnandi.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Norðaustlæg átt og víða úrkoma, ýmist rigning, slydda eða snjókoma, en yfirleitt þurrt SV-til. Hiti yfir frostmarki syðst annars vægt frost.

Fleiri fréttir