Hálka á flestum vegum NLV
Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Hæg austlæg átt og víða léttskýjað á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Austan 10-15 m/s við S- og SV-ströndina, annars mun hægari vindur. Bjartviðri á N- og V-landi, en dálítil él A-til og með S-ströndinni. Frost 0 til 13 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Á miðvikudag:
Gengur í austan 13-23 m/s, hvassast við S-ströndina. Él á S- og A-landi, annars úrkomulítið. Hiti 1 til 5 stig syðst, annars 0 til 10 stiga frost, kaldast fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Ákveðin norðaustanátt. Snjókoma A-lands og él fyrir norðan, en yfirleitt þurrt á SV- og V-landi. Frost víða 0 til 5 stig, en 0 til 5 stiga hiti við S-ströndina.
Á föstudag:
Norðlæg átt og snjókoma eða él, en þurrt og bjart syðra. Frost 0 til 8 stig.
Á laugardag:
Austan- og norðaustanátt. Dálítil él fyrir norðan, en þykknar upp syðra. Frost 0 til 10 stig.
Á sunnudag:
Austanátt og slydda eða rigning S-til, en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnandi veður.