Hálka á Þverárfjallsvegi
Suðaustan 3-8 m/s og skýjað er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en 5-10 og bjart á morgun. Hiti 1 til 6 stig, en 7 til 15 á morgun, svalast á Ströndum. Vegir eru að mestu greiðfærir en þó er hálka á Þverárfjallsvegi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Austlæg átt 8-15 m/s hvassast syðst. Dálítil súld eða rigning með S- og A-ströndinni, en annars víða léttskýjað. Hiti 2 til 12 stig, hlýjst SV-til.
Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Suðaustlæg átt, 8-13 m/s syðst, en annars 3-8. Skýjað og stöku skúrir S- og A-lands, en annars bjartviðri. Hiti víða 6 til 11 stig.
Á föstudag:
Hæg norðvestlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en skúrir á stöku stað. Heldur kólnandi veður, einkum fyrir norðan.
Á laugardag:
Norðlæg átt, svalt í veðri og smá skúrir eða él fyrir norðan, en annars bjartviðri og milt.
Á sunnudag:
Vestlæg eða breytileg átt með úrkomu víða um land, en fremur svalt í veðri.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum N- og A-lands og kólnandi veður.