Hálka á velflestum vegum

Færð á vegum uppúr kl. 9 mánudaginn 18. janúar 2016. Mynd/Vegagerðin.
Færð á vegum uppúr kl. 9 mánudaginn 18. janúar 2016. Mynd/Vegagerðin.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg suðaustlæg eða breytileg átt og léttskýjað að mestu. Frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Hálka er á velflestum vegum á Norðurlandi. Þá má búast við umferðatöfum í Strákagöngum vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi og virða hraðatakmarkanir. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Suðaustan 8-13 m/s og þykknar upp á sunnanverðu landinu, heldur hvassara um kvöldið, slydda eða rigning og hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur fyrir norðan, lengst af léttskýjað, en dregur úr frosti. 

Á fimmtudag:

Ákveðin suðaustanátt og rigning, en þurrt norðantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig, en um og yfir frostmarki fyrir norðan. 

Á föstudag:

Suðaustanátt og rigning víða um land og milt, en vestlægari síðdegis, dálitlar skúrir eða él vestantil og kólnar. 

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt. Skúrir eða él, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti kringum frostmark.

Fleiri fréttir