Hálka eða hálkublettir víða á vegum
Hálka, snjóþekja og hálkublettir eru víðast hvar á Norðurlandi. Hálka er á Öxnadalsheiði og ófært á Siglufjarðarvegi. Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-13 m/s í dag og dálítil él norðantil, en hægari og úrkomulítið inn til landsins.
Á morgun verður austan 5-13 á morgun og þurrt, en norðlægari og hvessir seinnipartinn. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Austan 8-15 m/s og dálítil él A-til, en þurrt á V-helmingi landsins. Norðaustan 13-18 um kvöldið með snjókomu eða éljum N- og A-lands. Frost víða 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við suðausturströndina.
Á miðvikudag:
Norðaustan 13-18 m/s og snjókoma N-til á landinu, en hægari vindur S-lands og þurrt. Hiti um og undir frostmarki, en frostlaust með S- og A-ströndinni.
Á fimmtudag:
Hvöss norðan- og norðaustanátt og snjókoma, en þurrt að kalla syðra. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Hægt minnkandi norðanátt. Snjókoma eða él N- og A-lands, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.
Á laugardag:
Snýst í suðaustanátt vestast á landinu með dálitilum éljum, en fremur hæg breytileg átt annars staðar og bjart veður. Frost 0 til 8 stig mest í innsveitum, en hlánar með S- og V-ströndinni.
Á sunnudag:
Líkur á suðaustan- og sunnanátt með snjókomu eða slyddu, en þurrt NA-til. Hiti kringum frostmark.