Hálka eða snjóþekja á vegum

Nú rétt fyrir kl. 9 á Norðurlandi er víða nokkur hálka eða snjóþekja á vegum og einnig éljagangur eða skafrenningur, einkum eftir því sem austar dregur.

Austan 5-10 og skýjað er í landshlutanum, frost 0 til 5 stig. Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa í kvöld, 13-18 m/s í nótt. Snýst í suðvestan 5-13 með éljum á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Snýst í suðvestan 5-10 með dálitlum éljum V-lands. Annars suðaustan 13-20 og rigning eða slydda, einkum á S- og SA-landi, en dregur úr vindi síðdegis. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig, en frystir um kvöldið.

Á fimmtudag, föstudag og laugardag:

Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og él, en léttskýjað á NA-verðu landinu. Hiti kringum frostmark að deginum.

Á sunnudag:

Norðvestanátt og snjókoma eða él fyrir norðan, en léttskýjað syðra. Kalt í veðri.

Á mánudag:

Snýst líklega í austanátt og fer að snjóa á S-verðu landinu, en úrkomulítið fyrir norðan.

Fleiri fréttir