Hálka og snjóþekja víða í Skagafirði

Greiðfært eða hálkublettir eru í Húnavatnssýslum en hálka eða snjóþekja víða í Skagafirði og áfram austur um Norðausturland. Enn varar Vegagerðin við vegaskemmdum á Þverárfjallsvegi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát. Þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-15 m/s og él í dag, frost 1 til 8 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag og föstudag:
Norðaustan 5-13 m/s. Él fyrir norðan og einnig syðst á landinu, annars þurrt. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Á laugardag:
Norðaustan 8-15 m/s. Snjókoma um tíma SA-lands, annars víða él en úrkomulítið á SV-landi. Frost víða 0 til 5 stig, en hlánar syðst á landinu.

Á sunnudag:
Hvöss norðaustanátt með slyddu eða rigningu, en snjókomu á N- og NV-landi. Hlýnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt og úrkoma með köflum. Hiti 0 til 5 stig að deginum.

Fleiri fréttir