Hálka víða á Norðurlandi
Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir mjög víða og sumstaðar skafrenningur á fjallvegum. Þungfært er á Öxnadalsheiði en verið að hreinsa, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-13 m/s í dag en 3-10 á morgun. Dálítil él, en úrkomulítið inn til landsins. Kólnandi, frost 1 til 7 stig í kvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan 3-10 m/s um landið S- og V-vert og víða léttskýjað. Norðvestan 5-13 NA-til og lítilsháttar él. Frost 1 til 11 stig, mest inn til landsins.
Á mánudag:
Fremur hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en norðvestan 5-10 m/s og stöku él við NA-ströndina. Frost 3 til 13 stig, kaldast í innsveitum. Suðaustan 8-13 vestast um kvöldið, skýjað og minnkandi frost þar.
Á þriðjudag:
Austan og suðaustan 8-15 m/s S-lands og dálítil él, einkum með ströndinni. Hiti um og undir frostmarki. Hægari vindur N- og A-lands og bjartviðri og frost 3 til 14 stig, mest í innveitum.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna suðaustan- og austanátt og úrkomu víða um land, mest SA-til. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan.