Hálkublettir og hægviðri
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
08.11.2013
kl. 09.15
Í morgun klukkan níu voru hálkublettir á Þverárfjalli, en þar voru ANA 3 m/s og fimm stiga frost. Á Vatnsskarði voru einnig hálkublettir en þar voru A 2 m/s og sjö stiga frost. Þá voru hálkublettir á Siglufjarðarvegi milli Hofsóss og Siglufjarðar.
Aðrir vegir á Norðurlandi vestra voru greiðfærir og hægviðri með 2-7 gráðu frosti.