Hálkublettir og snjóþekja Norðvestanlands
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan og austan 3-8 m/s. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður hvassara á annesjum í kvöld. Skýjað með köflum og stöku él á annesjum. Frost 0 til 6 stig en frostlaust við sjóinn síðdegis á morgun.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að Norðvestanlands eru hálkublettir og snjóþekja en hálka er á Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag og laugardag:
Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðst. Él eða slydduél suðaustan og austantil annars þurrt og bjart að mestu. Hiti 0 til 5 stig við sjávarsíðuna yfir daginn, en annars hiti um og undir frostmarki.
Á sunnudag:
Breytileg átt, 3-8 m/s, en austan 8-13 syðst. Víða léttskýjað en slydduél syðst. Hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands að deginum, en annars í kringum frostmark.
Á mánudag:
Fremur hæg norðaustlæg átt. Bjartviðri inn til landsins en annars skýjað að mestu. Heldur svalara í veðri.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Norðaustan 3-8. Skýjað að mestu og él á stöku stað. Frostlaust yfir daginn SV-lands en annars frost 0 til 10 stig.