Hálkublettir víða á vegum
Hálkublettir eru víða á vestanverðu Norðurlandi, einkum á útvegum. Á Norðurlandi vestra er vaxandi austanátt, samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands, 8-15 m/s eftir hádegi. Dálítil slydda eða rigning og hiti 0 til 5 stig. Hægari í kvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Austan og norðaustan 8-13 m/s, en 13-18 S- og V-til um kvöldið. Snjókoma eða él N- og A-lands, en annars úrkomulítið. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust allra syðst.
Á sunnudag:
Norðaustanhvassviðri eða -stormur. Rigning SA-til, slydda eða snjókoma fyrir norðan, en úrkomulítið SV-lands. Hiti 0 til 5 stig, en sums staðar vægt frost N-til.
Á mánudag:
Norðanhvassviðri og snjókoma eða él á N-verðu landinu og slydda A-til, en annars úrkomulítið. Kólnandi veður.
Á þriðjudag:
Allhvöss norðanátt með éljagangi NV-til framan af degi, en annars mun hægari vindur og stöku él. Talsvert frost.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðanátt með ofankomu N- og A-lands.