Handhafar Uppreisnarverðlaunanna 2018

Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, Geir Finnsson, Gylfi Ólafsson, Sigríður María Egilsdóttir og Arnar Snær Ágústsson, meðlimir í Uppreisn. Mynd aðsend.
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, Geir Finnsson, Gylfi Ólafsson, Sigríður María Egilsdóttir og Arnar Snær Ágústsson, meðlimir í Uppreisn. Mynd aðsend.

Uppreisnarverðlaunin voru veitt í fyrsta skipti til viðurkenningar á markverðu og óeigingjörnu starfi í þágu frjálslyndis og almannahagsmuna. Uppreisn, ungliðahreyfing Viðreisnar, veitir verðlaunin sem þakklætisvott í garð þeirra sem skarað hafa fram úr á framangreindum sviðum. Verðlaunin eru veitt í tvennu lagi. Annars vegar til einstaklings og hins vegar til hóps.

Einstaklingsverðlaunin voru veitt Benedikt Jóhannessyni, fyrrverandi fjármálaráðherra. Að mati stjórnar Uppreisnar lyfti Benedikt grettistaki þegar hann stofnaði stjórnmálaflokk, sem hvort tveggja var byggður á grundvelli frjálslyndrar hugsjónar og hafði „almannahagsmuni framar sérhagsmunum“ að einkennisorðum.

Svala Jóhannesdóttir, verkefnastjóri Frú Ragnheiðar, Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra og stofnandi Viðreisnar og Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, formaður Uppreisnar. Mynd aðsend.

 Hópurinn sem veitt voru Uppreisnarverðlaunin 2018 var Frú Ragnheiður – skaðaminnkun. Frú Ragnheiður hefur með starfi sínu bjargað mannslífum, aukið öryggi fólks notar vímuefni í æð og staðið að fræðslu um jaðarsetta hópa. Svala Jóhannesdóttir, verkefnastjóri Frú Ragnheiðar, tók á móti verðlaununum fyrir hönd verkefnisins. Hún vinnur, ásamt hópi sjálfboðaliða, að hinu mikilvæga lýðheilsustarfi sem Frú Ragnheiður sinnir.

Stjórn Uppreisnar vonar að verðlaunin muni hvetja fólk til frekari dáða í frjálslyndum málum í þágu almannahagsmuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir