Hannes leggur Fjölskylduhjálp lið

Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi og eiginkona hans, Charlotte Kvalvik heimsóttu Fjölskylduhjálpina í gær og aðstoðuðu sjálfboðaliða þar við úthlutun og pökkun á matvælum.

„Fleiri en okkur hjónum veitti líklega ekkert af því að starfa dagpart eða svo hjá Fjölskylduhjálpinni og sjá aðra hlið á samfélagi okkar Íslendinga. Allt er á uppleið segja stjórnvöld. Á sama tíma fjölgar þeim sem þurfa að leita sér aðstoðar. Hrópandi ósamræmi,“ segir Hannes Bjarnason á facebook-síðu sinni.

Hannes hrósar sjálfboðaliðum Fjölskylduhjálpar fyrir óeigingjarnt starf sitt. „Það er óeigingjarnar sálir sem vinna þar og veita þurfandi hjálp. Við viljum hrósa ykkur fyrir það framlag sem þið veitið samfélagi okkar og þá góðu fyrirmynd sem þið annars sýnið með vinnu ykkar!“ segir Hannes og þakkar þeim samtímis fyrir að taka á móti þeim með opnum örmum og gera þeim kleift að leggja sitt af mörkum.

„Til allra þeirra þurfandi sem komu - takk fyrir að leyfa okkur hjónum að sjá hliðar af samfélagi okkar sem allt of margir leiða hjá sér. Takk!,“
segir Hannes í lokin.

Fleiri fréttir