Harma áhugaleysi alþingismanna á stöðu landsbyggðarinnar
Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi hélt aðalfund sinn í Ketilási í Fljótum sl. laugardag. Þar var Ómari Ragnarssyni m.a. færð gjöf frá samtökunum fyrir góð störf í þágu landsbyggðarinnar á undanförnum áratugum. Einnig ályktaði fundurinn um áhugaleysi alþingismanna á stöðu landsbyggðarinnar.
Á fundinum var Ómari Ragnarssyni fært málverk sem Trausti Sveinsson og Sigurbjörg á Bjarnagili í Fljótum gáfu Landsbyggðinni lifi 2010 en þau færðu honum það einnig á fundinum.
Málverkið er af stíflunni í Fljótum eftir að vatninu var hleypt á laust fyrir miðja seinust öld. Samkvæmt heimasíðu Landsbyggðin lifi sagðist Ómar hafa verið að skoða lónið í vor þegar lítið vatn var í því og var hissa á hversu litlar aurskemmdir höfðu borist í vatnið og á jarðveginn sem fyrir var. Hann hafðu hug á að skoða það nánar.
Ályktun var samþykkt á fundinum sem hljóðar svo:
„Fundurinn harmar áhugaleysi alþingismanna á stöðu landsbyggðarinnar. Enginn þeirra sá ástæðu til að mæta á fundinn sem fjallaði um opinbera þjónustu á landsbyggðinni. Umræðan var boðuð með góðum fyrirvara til alþingismanna með aðalfundaboði samtakanna.“
Stjórn samtakanna er þannig skipuð:
Aðalstjórn:
- Eðvald Jóhannsson. Egilsstöðum Formaður.
- Björgvin Hjörleifsson. Dalvík. Varaformaður
- Guðrún Torfhildur Gísladóttir, Reykjavík. Gjaldkeri.
- Stefanía V. Gísladóttir, Kópaskeri. Ritari.
- Ómar Ragnarsson. Reykjavík. Talsmaður.
- Þórarinn Ólafsson. Reykhólum. Meðstjórnandi.
- Albert Gunnlaugsson. Siglufirði. Meðstjórnandi.
Varamenn:
- Trausti Sveinsson. Fljótum.
- Stefán Haraldsson. Blönduósi.
- Halldór Jörgenson. Reykjavík.
- Guðjón Dalkvist Gunnarsson, Reykhólum.
- Helga Kristjánsdóttir. Súgandafirði